Bloggsvæðið mitt
Heimasíður fjölskyldumeðlima
óskastundir
08.11.2008 15:00:00 / ellen

Ákvað að henda inn nokkrum línum :)

Halló halló

jæja af okkur er svo sem allt fínt að frétta nema hvað síðustu tvær vikur eru búnar að fara í flensu skít og uppgangspestir:( elli minn byrjaði á því að fá bæði ælupest og flensu í byrjun síðustu viku og var þá bara í lúxus í garðabænum á meðan - já by the way við mæðgin erum hætt að bera út svo nú fær maður að sofa út á hverjum morgni mmmm (vakna ekki fyrr en 7) þvílíkt næs:p

nú svo kom elli heim og þá var einar orðinn veikur með hálsbólgu og beinverki, daginn eftir lagðist svo ernir.

í gærmorgun byrjuðu egill og sirrý að æla og svo náði ég rétt svo heim úr vinnunni,  rétt eftir það tók svo lísan við og svo eddi í nótt:$ bara vibbi og ekki var ástandið betra í Suðurhólunum þar ældi öll yngri kynslóðin til skiptis móður sinni til mikillar gleði eða þannig.....

annars er það að frétta að móðir mín átti afmæli í gær, dóttir mín yngri þann 5, Valgerður frænka mín í dag, Særún frænka mín, alda vinkona mín og þó nokkrir í viðbót sem ég þekki á morgun, stebbi í sveitinni á þriðjudaginn ásamt nokkrum öðrum Tindurinn á Strönd þann 16 osfrv, þannig að ég þekki nóg af afmælisbörnum í upphafi þessa mánaðar og óskum við þeim öllum til lukku með það kiss og knús til allra.

Nú þann 5 vorum við svo í frænku og frænda mat í völvufellinu og var voða gaman að sjá allt fólkið því miður vantaði steina og stóru strákana frá Strönd en maður sér þa´bara næst:haha:

allavega hafið það öll sem allra best, sjáumst sem fyrst aftur á svæðinu ;)
ælupúkakveðjur úr berginu


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.10.2008 10:14:24 / ellen

Smá update

DAginn gott fólk

ákvað að skrifa nokkrar línur fyrst maður hefur eh að segja og situr við tölvuna (greinilegt að maður gerir allt til að þurfa ekki að kafa sér í pappírsvinnu:$)

Allavega þá erum við hjónin ásamt Ella og Erni komin aftur eftir góða 3ja daga ferð til Berlinar:lol: ferðin var gríðarlega góð í alla staði, þó svo að við hefðum ekki komið með mikið af verðlaunapeningum heim en það mun bara ganga betur næst.  Við eyddum öllum laugardeginum í íþróttahöllinni dvöldum þar frá 11 - 22.00 og maður var orðin vel þreyttur eftir það.  Sunnudagurin fór svo í dýragarðsrölt sem var mjög skemmtilegt og við tókum smá lestarævintýri áður en við náðum garðinum sem var bara skemmtilegt og fróðlegt.

Mánudagurinn var svo virkilega vel nýttur þá fórum við að berlínarmúrnum, brandenborgarhliðinu og að kirkju sem öll er í rúst síðan í seinni heimsstyrjöldinni ásamt því að skoða eitt moll í Berlín, ég verslaði lítið sem ekkert en þurfti að kaupa smá af fötum á minnstu skvísuna þar sem hún er orðin gjörsamlega fatalaus þar sem hún á jú bara frændur og bræður:frown: en ég held ég hafi nú samt komið ágætlega út úr því þrátt fyrir gott gengi Evru;) svo var farið heim og lent rúmlega miðnætti.

Nú Ernir fékk bikar á laugardeginum fyrir mestu framfarirnar í sumar í boltanum:d:haha: svo minn maður var nokkuð stoltur af því.

jæja komin með gesti og ætla að reyna að gera eh.

Valdi þeirra hafdísar og gussa á afmæli í dag og er pilturinn nú orðinn sweet sixteen TIL HAMINGJU ELSKU VALDI OKKAR!!

Afi Bergsveinn hefði átt afmæli í gær og hefði orðið 102ára hvorki meira né minna.

Jæja hafið það öll sem allra best og takk fyrir innlitið:d
berlínar og bikarkveðjur úr berginu


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.09.2008 14:28:46 / ellen

We are still alive :)

Jæja ákvað að henda inn einu september bloggi svona í tilefni þess að það er ennþá rok og rigning;)

Allavega það er ennþá allt gott að frétta af okkur öllum, börnin dafna og þroskast dag frá degi, Elli pelli nánast raddlaus af mútum, Einar bara vex og vex, Ernir líka sem og litlu krílin.

Það er komið á hreint að við hjónakorn munum skella okkur með til Berlín og förum við af landi brott næsta föstudag:haha: jeyyy það verður bara gaman verst hvað bölv.... evran er há maður á örugglega ekki eftir að tíma að draga andann:whut: en við vonum bara það besta og óskum þess að gengið styrkist.

Nú vinnan á okkur hjónum er ekkert að minnka og sér í lagi eftir að opnun blómabúðarinnar var breytt nú er opið til 21.00 á kvöldin 3x í viku og munum við Erla skipta því bróðurlega á milli okkar;)  Ég er reyndar í vinnunni núna og er eiginlega bara að slugsa en er að fara að huga að bókhaldsvinnu fyrir bæði fyrirtækin mín.

Annars lítð sem ekkert væri gaman að vita hvort eh er enn að heimsækja okkur hér

Hafið það öll sem allra best,
blómakveðjur úr berginu:haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.08.2008 08:45:34 / ellen

Varð að koma eitt ágústblogg :/

Góðan og blessaðan gott fólk, long time no see;)

Ég gat nú ekki látið ágúst líða án þess að það kæmi eitt einasta blogg - eða hvað?

allavega allt fínt að frétta af okkur í familiunni, tíminn líður áfram og egill þor er byrjaður hjá dagmömmu og er þvílíkt kátur með það, hann er líka farinn að skríða út um allt og stendur upp alls staðar og í raun og veru er hann ekki kyrr eina einustu mínutu8| en voða góður samt.

Lísbet er bara eins og hún er vön, stjórnsöm og ráðrík og hefur í nægu að snúast í leikskólanum.  bræðurnir 3 mjög glaðir ennþá með að vera byrjaðir í skólanum og eru á fullu í fótbolta, karate og bood camp þessa dagana sem sagt mjög gott og Sirrý er á fullu í boltanum og er svo byrjuð á íþróttabraut í Fb og er bara nokkuð ánægð með það held ég.

við hjónin höldum svo bara okkar striki vinnum og vinnum, tökum til, etum og sofum en við erum farin að sjá fyrir eina helgarferð til berlínar í byrjun október þegar drengirnir okkar 2 elsti og yngsti af fyrra hollinu ætla að fara að keppa í karate þá helgi okkur langar til að fara báðum en við munum sjá hvað setur:d

sem sagt smá update ur berginu fyrir þau ykkar sem enn kíkið hér inn.  og by the way við hjónin erum komin á facebook svo endilega kíkið á okkur þar;)

hafið það öll sem allra best og passið ykkur á að fjúka ekki í burt

rok og riginingakveðjur úr berginu


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.07.2008 02:01:24 / ellen

Haldiði að það c blogg kraftur í minni þessa dagana:)

Góða nótt gott fólk:d

ég ákvað að skrifa nokkrar línur þar sem ég er enn vakandi og hef eh fréttir að segja.  Við Erla vinkona fórum út að borða á Caruso í kvöld á vinnufund sem gekk líka svona agalega glimmrandi vel við náðum að ákveða vetraropnun, ýmsar uppákomur og námskeið fram að jólum í verslunninni okkar, ræddum launamál, vinnuskipti ofl hugmyndir.  Einnig var ákveðin verslunarferð til usa í desember en því miður verður það á eigin vegum engin skipulögð ferð á vegum óskastunda að þessu sinni þar sem flugleiðir klúðruðu ferðinni okkar til minnieapolis með því að fella niður flug þangað í október:cry: en út ætlum við og að sjálfsögðu er öllum vinum og vandamönnum velkomið að koma með og óskastundir geta gefið þeim sem vilja verð í ferðina með okkur við ætlum að sjá með flug 5 - 12 des. Sem sagt góður og kraftmikill fundur hjá okkur skvísunum.  Svo kem ég heim og sest á dolluna og ákvað að skrifa bara hér inn á milli ferða:s vonandi verður þetta ekki lang líft ferðalag

Egillinn minn er lasinn:$ veit reyndar ekki hvað er að hrjá lítinn mann annað en mjög hár hiti og væli væl:( en vonandi verður hann orðinn góður á morgun.

Sirrýin okkar er flogin til Hjörring Danmörk, þar sem hún mun dvelja næstu vikuna við fótboltakeppni við hinar ýmsu þjóðir vonandi verður þetta bara skemmtileg og góð ferð fyrri hana:d nú eru bara 4.dagar í að einsinn minn komi heim og er hann þá búinn að vera í mánuð frá mömmu og pabba það verður gaman og gott að fá hann til baka.  Elli er búinn að dvelja í grafarvogi hjá Sissu, Pétri og Andresi síðust 2.nætur (að þessari meðtalinni) í góðu yfirlæti en svo líkur sælunni á morgun þar sem útburður mun taka við á þriðjudaginn.

jæja held ég láti þetta duga í bili en það fá 2.afmæliskveðjur frá mér sem áttu afmæli þann 19 og það eru þeir Steini (pabbi hans Árna) og Þengill (bróðir hans Vífils) Til lukku báðir tveir  ykkar vegna mun ég ekki setja inn aldurinn ykkar þar sem þið eruð orðnir alltof gamlir fyrir svoleiðis lagað hahahahha:haha:

en allavega læt þetta duga í bili, hafið það sem allra best öll sem eitt
funda og ferðakveðjur úr berginu

» 3 hafa sagt sína skoðun

18.07.2008 00:40:17 / ellen

júlí blogg hehe

gott kvöld allir saman, long time no see everyone

Hér er allt við það sama svo sem nema hvað við börnin mín sem á landinu eru erum búin að vera á faraldsfæti jafnt saman sem ekki saman hahah, síðastliðinn föstudag brunuðum við Elías, Ernir, Lísbet og Egill þór strax eftir vinnu hjá mér til Ólafsfjarðar þar sem Ernir freyr tók þátt í Nikulásarmótinu í fótbolta ásamt leikni og stóðu þeir sig algerlega eins og hetjur:haha: C-lið leiknis í 6.flokk vann 6 flokks riðilinn sem var fjölmennastur eða alls 21 lið bara frábært, B-liðið sem Ernir spilaði með stóð sig líka mjög vel en komu því miður ekki heim með bikar að þessu sinni.  stemmningin var frábær og stuðningur foreldra og systkina mjög góður ;)  Sirrý var fjarri góðu gamni á þessu móti þar sem hún skellti sér í sæluna til ömmu á Selfossi hún kom svo heim á sunnudaginn en við hin héldum áfram og brunuðum á Húsavík og vorum þar þangað til í gær en því miður lagðist kæra frænkan mín í rúmið með ælupest og var hún bara virkilega veik svo ekki sáum við mikið af henni þessa daga því miður.  En við gerðum samt ýmislegt, fórum í heimsókn til Berglindar það var voða gaman takk kærlega fyrir okkur:haha: fórum út að borða, kíktum á hvalasafnið og reðursafnið svo við vorum bara nokk menningarleg að þessu sinni:haha: á heimleiðinni var stoppað við á sauðárkrók hjá óla og Siggu og það var alveg meiriháttar heimsókn þúsund þakkir fyrir frábærar móttökur elskurnar!! okkur hlakkar bara til að koma aftur;)

Nú styttist í að einsinn minn komi heim og ég verð nú að segja það að mig er alveg farið að hlakka til að sjá karlinn minn.  Sirrý fer svo út til Danmörku á sunnudaginn svo það er ekkert stopp á heimilsfólkinu á þessum bæ.  Við Elli byrjum svo aftur í útburði á þriðjudaginn:s eftir gott 2ja vikna frí en við förum svo aftur í uþb 10 daga frí helgina eftir verslunarmannahelgina þannig að maður er strax farin að hlakka til þess hehe.

jæja læt þetta duga í bili hver veit nema andinn komi yfir mann aftur fljótlega og já nú er maður komin á facebook svo endilega kíkið á mig þar þið sem þar eruð að rúnta um;)

hafið það öll sem allra best fram að næsta bloggi og hver veit nema það komi annað í júlí;)

ferðakveðjur úr berginu


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.06.2008 09:51:34 / ellen

Nóg að frétta :)

Daginn gott fólk, það er að segja ef eh er enn að lesa;)

Nú er svo sem nóg búið að vera að gerast í berginu.  Karlinn er væntanlegur til lansins í kvöld eftir veiðiferð til Eistlands hann fór snemma á föstudagsmorguninn og er búinn að veiða vel, hann skaut 2.rádýr og þar af er annað þeirra með það stóra krúnu að það skoraði silfur verðlaun:d (hann var að sjálfsögðu mjög glaður með það) nú og svo skaut hann einn villigölt þungann en ekki með neitt sérstaklega stórar tennur. Vonandi koma eh myndir með til landsins en því miður varð hann rafm.laus og með vitlaust hleðslutæki en ferðafélaginn tók að mér skilst eh myndir og vonandi koma þær inn fyrr en síðar.

Ég veit uppá mig skömmina með að setja myndir inní albúmið og reyndar veit ég einnig uppá mig skömmina með að vera afskaplega löt við að taka myndir af minnstu snúllunni minni:$ en vonandi stendur það allt til bóta, reyndar þá hef ég ekki getað sett myndir inní tölvuna mína og við notuðum alltaf ella tölvu en vinurinn læsti henni svo vel að hún er ónothæf og við ekki búin að fara og láta opna hana, það er helsta skýringin á því að engar nýjar myndir eru komnar inná netið (eða við segjum  að það c skýringin allavega):d

Nú Sirrý og Elli byrjuð á fullu í ungl.vinnunni og eru bara ánægð með það að ég held og svo fer Einsinn minn með ömmu Lóu og Maju til Danaveldis seint annað kvöld og mun hann dvelja þar í 10.daga það verður örugglega bara frábært hjá þeim.

Jæja ég er að hugsa um að fara að sinna unganum mínum sem hlýtur að fara að vakna síðan um 11.leitið í gærkveldi. og þar sem hann var svo duglegur að lúlla ´ser þá er ég búin að bera út, snæða morgunverð, setja í þvottavél, taka létt til í eldhúsinu, færa inn bókhald og borga reikninga svo eh c nefnt og klukkan enn ekki orðinn 10:lol: já batnandi fólki er best að lifa segir eh staðar hehe.

Allavega hafið það öll sem allra, allra best
sjáumst sem fyrst aftur
morgunhana kveðjur úr berginu


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.05.2008 08:14:02 / ellen

Loksins

Daginn gott fólk:lol:

Jæja þá held ég að ég c loksins að finna sjálfa mig eftir að ég átti yngsta fjölskyldumeðliminn allavega fór ég á fætur klukkan 5 í morgun og er ennþá full af orku þetta hefur ekki gerst í háaherrans tíð;) við elli fórum og bárum út í fínu veðri, svo kom ég heim, tók af snúrunni, hengdi upp, setti í aðra vél, braut saman þvott, tók til í eldhúsinu, fékk mer morgunmat og fletti blöðunum, kom öllum í skólann settist svo niður og fór í gegnum emailinn minn og sitt núna við skriftir heheh.

Allavega allt gott að frétta að öðru leiti vorum í mat hjá tengdó í gær þar sem hún var svo elskuleg að bjóða okkur í mat eftir að ég var búin að vinna. TAKK FYRIR OKKUR ELSKU TM

Nú er farið að styttast alvarlega í að Einar fari af landi brott og er ekki laust við að maður c að verða pínu stressaður hehe nei, nei ég veit að þetta á allt eftir að fara mjög vel:d

hmmm, ég held ég hafi bara ekkert meira að segja í bili svo þangað til næst, hafið það öll sem allra best.

orkukveðjur úr berginu


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.05.2008 13:03:00 / ellen

Alltaf eitthvað um að vera

sælt veri fólkið,

hér sit ég á laugardegi og ákvað að blogga í staðinn fyrir að hreyfa á mér rass..... og byrja að þrífa úff hvað ég er bara alls ekki að nenna því:cry: en allavega þá skelltum við Egill, Lísa og Elli í útskrift hjá henni Valgerði frænku minni í gær hún var að útskrifast úr Kvennó og var þetta alveg rosalega fín veisla eins og alltaf TAKK KÆRLEGA FYRIR OKKUR OG INNILEGA TIL HAMINGJU AFTUR:d!!

Arnar Frosti minnsti kúturinn í familiunni lenti inná spítala í vikunni:( vegna mikils kvefs og eh andnauðar en sem betur fer fékk hann að fara heim eftir að kom í ljós að þetta var enginn vírus og enginn sýking bara svona afskaplega mikið kvef vonandi að hann nái sér sem fyrst upp úr því karlinn litli.

Egill Þór fór í vigtun í gær og er hann orðinn 6900gr og 61cm sem sagt nógu þungur en óttalegur stubbur það kemur vonandi allt saman;)

Annars bara allt fínt að frétta úr letibælinu Neðstabergi.

hafið það sem allra best
letikveðjur frá okkur öllum


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.05.2008 13:50:57 / ellen

Á faraldsfæti....

Halló halló

Við Egill erum aldeilis búin að vera á faraldsfæti síðan ég skrifaðu síðast.  Við skelltum okkur náttlega til Köben sem var yndislegt í alla staði fengum frábært veður og allt gekk að óskum sem betur fer:haha:

svo komum við heim og stoppuðum heima í 2.sólahringa og skelltum okkur svo í sveitasæluna og náðum í restina af sauðburði bara frábært að komast loksins í sveitina og komum heim seint í gærkveldi:haha: sem sagt vel sigldur egill :þ

Hann Gunnar Örn er seytján ára í dag og óskum við honum innilega til lukku með það!! og svo áttu foreldrar hans brúðkaupsafmæli um daginn og óskum við þeim innilega til lukku með það ;) Andres Viðar varð svo 15.ára þann 16 svo það er svo sem nóg um að vera.

Maja mágkona flutt í voða fína íbúð í Búðargerðinu held ég og bauð hún okkur tengdó og önnu í mat á annan í hvítasunnu og var það rosalega fínt hjá henni svo nú er hún á fullu við að gera fínt hjá sér og mér itl mikillar ánægju er skreytt alveg helling úr búðinni minni:haha: sem er bara ánægjulegt

Allir hressir og kátir sem betur fer, kem vonandi inn fljótlega aftur þangað til þá lifið heil og njótið lífsins með hækkandi sól ;)

farandskveðjur úr berginu


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.05.2008 10:59:53 / ellen

Allt að gerast í fínu veðri

Daginn gott fólk

Jæja var ég nú illa svikinn 2.maí ég hélt ég væri að fara að bjóða velkomna í heiminn litla stúlku en svo þegar allt var yfirstaðið var þá ekki litla "frænka mín" með pung:s jebb 3 strákurinn mættur á svæðið í Suðurhólunum svo enn verða skvísurnar í miklum minnihluta í þessari fjölskyldu;) Pilturinn var 12.merkur 47 cm og voða fínn og sætur, því miður er tölvan hans ella læst og enginn kemst inní hana ekki einu sinni hann sjálfur og ég er ekki með kortalesara í minni tölvu og enga finn ég snúruna svo ekki get ég sett myndir af prinsi ennþá en þær munu koma þó síðar verði:þ hann er kominn með nafn snúðurinn og mun hann heita Arnar Frosti til lukku með elskurnar.

Ella gekk voða vel á mótinu vann sinn flokk en þar sem þetta var 3ja mótið af þremur og heildarstig skera úr um sigurvegarana þá lenti hann í 3ja sæti yfir heildina sem er samt bara mjög gott:d til hamingju elsku elli minn.

Einari gekk vel á Akureyri og var mjög ánægður með ferðina skoraði eh af mörkum en kom því miður með eh magaflensu heim og liggur nú í sófanum steinsofandi:( vonandi að það verði orðið gott á morgun.

nú held ég láti þetta duga í bili svo ég hafi eh að segja næst heheh, en vonandi kem ég inn 1x í það minnsta áður en ég, Egill og Sirrý yfirgefum landið og fljúgum yfir til kóngsins köben á fimmtudaginn.

þangað til næst hafið það öll sem allra best
köbenskveðjur úr berginu




» 3 hafa sagt sína skoðun

01.05.2008 07:39:42 / ellen

Til hamingju með daginn

Daginn gott fólk og til hamingju með daginn 1.maí;)

Allt fínt að frétta úr berginu.  Einar Óli sonur minn er á leið til Akureyrar núna rett um 10leitið þar sem hann ætlar að láta ljós sitt skína á handboltamóti, því miður verður hann munaðarlaus á hinu snjóaða norðurlandi að þessu sinni þar sem að móðir hans formaður mótanefndar í karate færði síðasta mót vetrarins frá síðustu helgi yfir á þessa:s jebb steingleymdi handboltanum, en ég veit að hann verður sem betur fer í góðum höndum þar sem hann verður tekin undir verndarvæng Sveindísar mömmu victors vinar síns:d takk fyrir það elsku Sveindís mín.

Nú já eins og áður sagði þá er Elías svo að fara að keppa um helgina og vonandi mun hann gera góða hluti í því.

Ég ætla svo að vera að taka á móti litlu "frænku" minni fyrir hádegið á föstudaginn morgun sem sagt þar sem elskuleg mágkona mín verður sett af stað í kvöld aldrei þessu vant hefur verið ákveðið að bíða ekki eftir því að blóðþrýstingurinn hækki upp úr öllu valdi og ákveðið að drífa í þessu áður en allt er komið í óefni jebb batnandi heilbr.kerfi er best að lifa eða hvað?? allavega er blóðþrýstingurinn nokkuð jafn og góður þessa dagana en á morgun verður hún komin rétt tæpar 39 vikur (sem er meðgöngu met hjá henni) svo að það verður allt í fína að fá krílið í heiminn ég set inn myndir um leið og þær koma í hús:d

Nú formleg nafnabreyting og opnun blómabúðarinnar minnar var í gærkveldi og heppnaðist það virkilega vel og var voða gaman að sja´og hitta alla sem komu takk fyrir komuna öll sömul og takk fyrir flottar gjafir:d það þorði enginn að koma með blóm eða styttur þar sem þetta er blóma og gjafavöruverslun en hér með segi ég það að ykkur er alveg óhætt að halda áfram að færa mér blóm þó svo að ég eigi svona búð (svo er ég svo sjaldan að vinna að það má vel kaupa þau hjá okkurhahah) en að öllu djóki slepptu þá er okkur Erlu ekkert hætt að finnast gaman að fá blóm svo alls ekki vera hrædd við það.  En að þessu sinni græddum við bara fullt af léttvínsflöskum svo nú getur maður byrjað að sulla haahaha.

Nóg komið af skrifum á degi verkalýðsins, hafið það öll sem allra best og vonandi eru ekki allir hættir að skoða bloggið mitt sökum lítilla skrifa nú fer ég að taka mig á:haha:

bless í bili og gangið hægt inn um gleðinnar dyr
opnunar og fæðingarkveðjur úr berginu



» 2 hafa sagt sína skoðun

28.04.2008 18:54:40 / ellen

Ekki hætt

Komið þið nú sæl og blessuð öll sömul:haha:

Nei eg er  nú ekki hætt að blogga en tíminn bara flýgur svo áfram að það hálfa væri nóg, það er alltaf helgi eða alltaf mánudagur og allt í einu er APRÍL bara að verða búinn þetta er ótrúlegt Egill þór er orðinn 3ja mánaða:s og Anna alveg komin að goti:p já það er komið í ljós að ef hún verður ekki búin að eiga á föstudaginn þá verður hún sett af stað svo það styttist í nýjasta fjölsk.meðliminn. Hún verður komin 38 vikur á morgun en það á að drífa í þessu þar sem að blóðþrýstingurinn er farinn að hækka.

Annars er það að fretta að við erum búin að fara í 9 fermingar áttum eina sjálf að vísu og skrópuðum í eina:cry: því miður við fréttum að hún hefði verið rosalega fín og vel heppnuð.  því miður varð dollan besti vinur mannsins míns þann daginn og ég var búinn að vera veik og var á fullu í breytngum í búðinni minni svo við vorum fjarri góðu þá en hefðum við mætt þá værum við búin að leggja 10 fermingaveislur að baki þetta árið - geri aðrir betur8)  þar að auki er ég búin að fara í 3 jarðafarir:cry: sem er alltaf erfitt og leiðinlegt.

Allir nokkuð hressir í berginu þó, nema ég virðist alltaf ná mér í eh helv... skít:^) er orðinn frekar þreytt a því, Elli lá í viku og egillinn minn fékk hor og hita8| hann meira að segja var með hor í um 3 vikur en er orðinn góður sem betur fer.  í 3ja mán skoðun var hann orðinn 6100gr og 59,5cm jebb lítill trítill hann er þó yfir meðalkúrfu í þyngd en rett undir í lengd - hann er mikið styttri og þó nokkuð lettari en bræður sínir á þessum tíma svo ég er farin að halda að hann hafi verið mæltur vitlaust við fæðingu (þó var hann la´tinn hanga á haus:haha:)

jæja ætli ég láti þetta ekki duga í bili kannski ég komi inn aftur í vikunni, hafið það sem allra best og megið þið njóta hverrasr stundar hvern dag:haha:

veislukveðjur úr berginu


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.03.2008 12:19:50 / ellen

Afmælisdagur

Sælt veri fólkið

Jæja þá eru 2 af 9 fermingarveislum afstaðnar:haha: Guðjón Valur frændi minn og Ingimundur Haraldur frændi hans Guðna voru fermdir í gær og voru veislurnar hinar glæsilegustu, takk kærlega fyrir okkur öll sömul frábært alveg :haha: Reyndar var karlinn minn fjarri góðu gamni þar sem hann er slatti mikið lasinn greyið:( en því miður þarf hann að mæta í vinnu þrátt fyrir allt þar sem að Hjálmar er erlendis.

Nú það er nóg af afmliskveðjum að þessu sinni, Guðný frænka mín átti afmæli í gær, Ásta Camilla og Bjarni frændi hennar ásamt Karli Viðari Péturssyni jr eiga öll afmæli í dag Innilega til hamingju öll sömul;)

Nú svo átti Hildur (systir hennar Öldu) hann Bjarna litla "stóra" á laugardaginn 15:haha: því miður fór hún doltið illa en okkur hlakkar mikið til að fá að hitta og sjá litla krílið TIL HAMINGJU ELSKU HILDUR OG ATLI:haha:     Drengurinn var heilar 18.merkur og 52cm enginn smá smíði þar á ferð;)

Annars bara allt fínt að frétta af öllum.

Vona þið hafið það öll sem allra best

afmæliskveðjur úr berginu


» 6 hafa sagt sína skoðun

14.03.2008 11:24:43 / ellen

Allt er breytingum háð...

Daginn gott fólk:haha:

Jæja allt gott að frétta af okkur og styttist heldur betur í fermingu :lol: ég hef nú reyndar litið heyrt frá fólki varðandi meldingu en vonandi þýðir það þá bara að þau muni mæta hehehe.

Allir eru hressir og kátir á þessum bæ nema kannski Guðni minn sem er nokk lasinn en verður að mæta til vinnu þar sem að Hjálmar er á ráðstefnu erlendis já svona er að vera bara 2 á einum s tað sem þarf að vera opinn.

Frúin í berginu er orðin atvinnulaus, fyrirtækjaeigandi heheh, allavega ég sagði upp hjá Kemis að ósk stjórnenda þess í gær og hætti samstundis og satt best að segja er mér ansi mikið létt og er bara fegin, maður veit víst ekki hveru mikil byrgðin er fyrr en maður er laus við hana:haha: sem sagt bara gott mál að mestu leiti.  Þannig að þið sem eruð með kemis mailinn minn endilega breytið honum í @centrum.is :haha:

Egill Þór fer svo í viktun á miðvikudaginn og það verður spennandi að vita hvernig það fer hann allavega blæs ut og stækkar og stækkar;)

Allavega þetta var helst í fréttum úr berginu að þessu sinni, ef ekkert blogg kemur fyrir mán.mótin við skulum nú samt vona að ég taki mig nú aðeins á með þetta blogg aftur.  Þá hlakka ég til að sjá ykkur sem flest í fermingu og skírnarveislu bræðranna þann 30.mars

atvinnuleysiskveðjur úr berginu;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 41
Heimsóknir
Í dag:  25  Alls: 79302